
Umbra20 er sjóður í eigu Umbra ehf. og er rekinn af sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni. Sjóðurinn fjárfestir í íbúðahúsnæði með kaupendum með það fyrir augum að auðvelda þeim íbúðakaup. Fjárfestingin takmarkast við þær eignir sem Umbra er með í byggingu og verða þær þá í óskiptri sameign með kaupendum. Fjárfestingarhlutfall sjóðsins er að hámarki 20%. Kaupandinn tekur svo allt að 70% lán hjá lánastofnun og leggur svo afganginn til af eigin fé, að lágmarki 10%.
Umbra er fjárfestingarfélag sem sérhæfir sig í byggingarverkefnum.
Á undanförnum árum hefur félagið lokið við byggingu tæplega 140 íbúða í 3 ólíkum verkefnum.
Umbra er eigandi verkefnisins að Eirhöfða 7 þar sem verið er að reisa 96 íbúðir, áætluð verklok eru byrjun árs 2026. Einnig er Umbra eigandi verkefnisins Víðiholts á Álftanesi en þar er um að ræða 50 íbúðir og 20 rað- og parhús.
Stefnir er rótgróið íslenskt sjóðastýringarfyrirtæki. Hlutverk félagsins er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Félagið var stofnað árið 1996.
Stefnir hefur á að skipa þaulreyndu starfsfólki með mikla starfsreynslu á fjármálamarkaði og tengda menntun. Hjá Stefni starfa um 20 sérfræðingar í þremur teymum við stýringu á fjölbreyttu úrvali verðbréfa- og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta.
Stefnir leggur sérstaka áherslu á öryggi í allri starfsemi sinni. Í því skyni hefur hefur fyrirtækið komið sér upp margþættum eftirlits- og áhættustýringarkerfum sem byggjast meðal annars á skýrum verkferlum, ytri og innri endurskoðun, regluvörslu og sérsmíðuðum eftirlitskerfum með fjárfestingarstefnum. Jafnframt framkvæmir félagið árlega innra áhættumat á helstu rekstraráhættuþáttum. Verðbréfasjóðir Stefnis og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta Stefnis lúta eftirliti FME, lögum samkvæmt.
Umbra20 sjóðurinn verður meðeigandi í eigninni en kaupandi hefur full afnot/umráð yfir eigninni. Samningstími er 3-10 ár.
Kaupandi getur tekið banka- eða lífeyrissjóðslán sem fer á 1. veðrétt (100% eignarhluta). Umbra20 fær svo 2. veðrétt (100% eignarhluta).
Umbra20 tekur þátt í kostnaði sem húsfélag samþykkir og þá í hlutfalli við eignarhluta sjóðsins. Einnig tekur sjóðurinn þátt í greiðslu fasteignagjalda, allt að 20%. Sjóðurinn greiðir ekki fyrir breytingar sem kaupandi ákveður sjálfur eða skemmdir sem eru umfram venjulega notkun. Daglegur rekstur/viðhald eignarinnar svo sem hiti, rafmagn, tryggingar og húsfélag er alfarið á ábyrgð kaupanda.
Bæði einstaklingar og lögaðilar geta nýtt sér Umbra20. Þeir þurfa að standast greiðslumat lánastofnunar og eiga að lágmarki 10% eigið fé við kaup.
Að lágmarki 10% eigið fé þarf til að kaupa.
Eignir sem Umbra er að byggja við Eirhöfða 7 og Víðiholti.
Kaupandi greiðir leigu af eignarhlut Umbra20. Leigan er verðtryggð og er föst fjárhæð greidd mánaðarlega. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 10. hvers mánaðar.
Heimilt er að selja eignina hvenær sem er á samningstíma.
Ef kaupandi vill eiga eignina lengur en 10 ár þá þarf að gera upp samninginn við Umbra20 með því að endurfjármagna.
Við sölu þá skiptist tap eða hagnaður eftir eignarhlutfalli.
Ef verð lækkar, lækkar eign sjóðsins einnig miðað við sinn hlut.
Já það er heimilt og ber kaupandi ábyrgð á skemmdum/tjóni sem af leigu kann að hljótast.
Til að fara út í meiri framkvæmdir en teljast til venjulegs viðhalds þarf skriflegt samþykki Umbra20. Ef farið er út í frekari framkvæmdir eru þær á kostnað kaupanda. Umbra20 getur ekki staðið í vegi fyrir framkvæmdum án réttmætrar ástæðu.
Þjónustuaðili Stefnis er Aparta Iceland ehf. kt. 550125-0560. Til að hafa samband við Aparta farið á heimasíðuna www.aparta.is